Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Jafntefli í fyrsta leik hjá stelpunum

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þórdís Anna ÁsgeirsdóttirHaukastelpur gerðu hreint út sagt grátlegt jaftefli við ÍR í fyrsta leik sínum í Íslandsmótinu í knattspyrnu. Til að gera langa sögu stutta náðu okkar stelpur forystu með marki Þórdísar Önnu Ásgeirsdóttur á 27 mínútu og héldu henni allt þar til ÍR-ingar skoruðu jöfnunarmark sitt beint úr aukaspyrnu þegar ekki nema 30 sekúndur lifðu leiks, þ.e. á 94 mínútu.

Lesa meira...
 

Stelpurnar hefja leik í kvöld

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Kristín Ösp SigurðardóttirFyrsti leikur hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu fer fram í kvöld á Hertz-vellinum (ÍR-vellinum) í neðra Breiðholti. Skv. spá sérfræðinga fótbolta.net er báðum liðum spáð ágætis gengi í sumar og þó sér í lagi okkar stelpum sem spáð er 3. sæti riðilsins. Ýmislegt þarf þó að ganga upp svo að svo geti orðið og þar á meðal telur stuðningur hvers áhorfenda mikið.

Lesa meira...
 

Lokahóf 1x2 tókst vel!

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarLokahóf 1x2 getrauna hjá Haukum var haldið með miklum myndarbrag sl. laugardag á Ásvöllum. Mikið fjölmenni mættu og þáði veglegar veitingar. Jón Björn Skúlason stjórnaði skemmtuninni af miklum myndarbrag og var það mál manna að kallinn hafi staðið sig einstaklega vel!

Lesa meira...
 

Haukar fengu viðurkenningar á lokahófi HSÍ

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar voru sigursælir á lokahófi HSÍ sem fram fór um síðast liðna helgi. Aron Kristjánsson, þjálfari liðsins var valinn þjálfari ársins. Aron Rafn Eðvarðsson var valin markvörður ársins og Matthías Árni Ingimarsson var kosinn varnarmaður ársins. Þá var Gylfi Gylfason í liði ársins í N1-deildinni.

Óskum við þeim til hamingju með viðurkenningarnar! 

 

Næstu leikir í fótboltanum

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Fyrir Hauka-fólk sem er á faraldsfæti næstu daga þá á meistaraflokkur karla í fótboltanum krefjandi útileiki næstu daga.  Í kvöld spilar liðið í Stykkishólmi gegn Snæfelli í Bikarkeppni KSÍ en lið Snæfells leikur í 3.deild karla og hefst leikurinn kl. 20:00.  

Á laugardaginn kl. 14:00 mætum við svo Hetti og fer leikurinn fram á Fellavellinum á Egilsstöðum. Sá leikur er í 2.umferð 1.deildar karla en bæði lið unnu leiki sína í fyrstu umferð.

Stelpurnar hefja svo leik hér á höfuðborgarsvæðinu kl.19:15 á föstudag þegar þær mæta ÍR í Breiðholtinu. 

Við minnum einnig á að þá sem hafa áhuga, á að staðan í öllum leikjum Hauka sem og aðra félaga er uppfærð á úrslitaþjónustusíðunni, Urslit.net um leið og mörk eru skoruð í leikjum.

Lesa meira...
 

Sigurbergur Sveinsson kominn heim í Hauka

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sigurbergur Sveinsson er kominn heim!Í gær skrifaði Sigurbergur Sveinsson, landsliðsmaður í handknattleik undir tveggja ára samning við Hauka.
Sigurbergur er okkur hjá Haukum að góðu kunnur enda uppalinn hjá félaginu.

 

Lesa meira...
 

Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar hafa lokið við að semja við alla leikmenn sína fyrir komandi keppnistímabil. En þeir Emil Barja, Haukur Óskarsson og Guðmundur Kári Sævarsson skrifuðu undir samninga við Hauka í dag um að leika með Haukum næstu 2 árin.

Nú liggur fyrir að Haukar munu tefla fram í 1.deild á komandi keppnistímabili þeim leikmönnum sem enduðu síðast liðið keppnistímabil með Haukum. Pétur Rúðrik Guðmundsson verður áfram þjálfari liðsins þar sem markmið Hauka er skýrt fyrir komandi keppnistímabil að endurheimta sæti í efstu deild að nýju.

Sævar Ingi Haraldsson og Óskar Ingi Magnússon hafa lagt skóna á hilluna og munu ekki spila með Haukum næsta vetur en að öðru leiti mun liðið verða með óbreyttan leikmannahóp.  

 

Einstaklingsþjálfun með Helenu Sverrisdóttur

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar í samvinnu við Helenu Sverrisdóttur standa fyrir séræfingum fyrir allar stelpur 12 ára og eldri og hefjast æfingar föstudaginn 18. maí. Lögð verður áhersla á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem mið er tekið af getu hvers og eins. Gerð verður áætlun í upphafi fyrir hvern og einn og fundið út á hvaða þætti lögð verður áhersla á þannig að hver og einn geti unnið í þeim þáttum sem að hann þarf helst á að halda.

Helena segir að kveikja af því að hún og Haukar ákváðu að setja svona þjálfunarprógramm í gang vera sú að henni hefur alltaf fundist gaman að miðla reynslu til annarra.

Lesa meira...
 

Uppskeruhátið yngri flokka handknattleiksdeildar

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarUppskeruhátíð yngri flokka í handknattleik verður á morgun þriðjudag og hefst stundvíslega kl. 18:00.

Veitt verða verðlaun fyrir uppskeru tímabilsins og að því loknu verða í boði pyslur og svali.

Við hvetjum alla til að mæta, ömmur, afa, mömmur, pabba, systkini og alla hina.

 

Stelpurnar töpuðu í úrslitaleik Lengjubikarsins

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar og ÍA mættust á Akranesvelli á föstudagskvöldið sl. í úrslitaleik Lengjubikarkeppni kvenna C-deildar í knattspyrnu. Fór svo að það voru heimastúlkur í ÍA sem höfðu sigur 1-0 og kom markið strax á 2. mínútu leiksins. ÍA var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér mörg færi, í síðari hálfleik voru okkar stúlkur hins vegar sterkari aðilinn en sköpuðu sér ekki nægjanlega mörg færi. Besta færi Hauka í leiknum kom í viðbótartíma en vörn ÍA var vel á verði og tókst að bægja hættunni frá á síðustu stundu.

Lesa meira...
 
Borði

Vefpóstur

Nafn:
Lykilorð:

Könnun

Hvernig fer 4. leikur Hauka og Njarðvíkur
 
Borði
Borði


Molar

Á félagsfundi í Haukum i ársbyrjun 1932 var samþykkt að félagið óskaði eftir aðild að ÍSI.  Félagið var skömmu síðar samþykkt sem fullgildur aðili að ÍSÍ.  (Heimild: Haukar í 60 ár, bls. 7)

samstarfsadilar

Borði